BLIKAR.IS STUÐNINGSMANNAVEFUR

Riðlakeppni Sambandsdeildar Evrópu 2023/24: Zorya Luhansk - Breiðablik

12.12.2023 image

Næsti Evrópuleikur okkar manna er gegn Zorya Luhansk frá Úkraínu.

Leikurinn fer fram í Lublin í Póllandi.

Sjötti og síðasti leikurinn í riðlakeppninni.

Sextándi Evrópuleikurinn á keppnistímabilinu.

Fimmtíu félög í Evrópusögu meistaraflokka Breiðabliks:

image

Leiðin í riðlakeppnina 2023/24

Forkeppni & Undankeppni  - Meistaradeild

Í júní þegar dregið var í forkeppni Meistaradeildarinnar kom liðið Tre Penne frá San Marínó upp úr pottinum sem fyrsti andstæðingur Breiðabliks í forkeppni Meistaradeildarinnar. Forkeppnin fór fram á Kópavogsvelli dagana 27. & 30. júní 2023. Leikurinn við San Marínó liðið var í undanúrslitum. Breiðablik vann leikinn við San Marínó liðið 7:1 og spilaði því úrslitaleikinn gegn Budućnost Podgorica frá Svartfjallalandi. Blikar unnu leikinn gegn þeim 5:0 og tryggðu sér þar með sæti í undankeppni Meistaradeildarinnar. Breiðablik mætti svo írsku meisturunum Shamrock Rovers í 1.umf í undankeppninni og strákarnir gerðu sér lítið fyrir og slógu þá írsku út með 0:1 sigri í Dublin og 2:1 sigri á Kópavogsvelli. Blikar mættu dönsku meisturunum FC Copenhagen í 2. umfeð. FCK vann báða leikina: 0:2 á Kópavogsvelli og 6:3 á Paken í Kaupmannahöfn.

Undankeppni - Evrópudeild

Blikaliðið tók þátt í 3. umferð undankeppni Evrópudeildarinnar og mætti þar Zrinjski frá Mostar í Bosníu-Hersegóvínu. Fyrri leikurinn í Mostar lauk með stórsigri heimamanna 6:2. Seinni leikurinn var á Kópavogsvelli og lauk með 1:0 sigri okkar manna. Zrinjiski vann einvígið samanlagt 6:3 en Breiðabliksliðið komið í umspil um sæti í riðlakeppninni.

Umspil (play-offs) - Sambandsdeild

Blikamenn mættu FC Struga frá N. Makedóníu í tveimur umspilsleikjum um sæti í riðlakeppni Sambandsdeildar Evrópu tímabilið 2023/24. Fyrri leikinn gegn Struga, sem leikinn var á Biljanini Izvori vellinum Í Ohrid í N. Makedóníu 24. ágúst, unnum við  0:1. Seinni leikurinn fór fram á Kópavogsvelli viku síðar. Sá leikur vannst einnig 1:0 og Breiðablik þar með búið að trygga sér sæti í riðlakeppni Sambandsdeildar Evrópu keppnistímabilið 2023/24 sem leikmenn fögnuðu vel og innilega með stuðningsmönnum í stúkunni: 

Saga Blika í Evrópukeppnum

image

Karlalið Breiðabliks lék sinn fyrsta Evrópuleik 15. júlí 2010. Síðan þá hafa Breiðabliksmenn tekið þátt í Evrópukeppnum í 9 ár af 13 mögulegum - þar af síðustu 5 ár í röð. Leikurinn við Zorya Luhansk á fimmtudaginn verður 43. Evrópuleikur karlaliðs Breiðabliks frá upphafi. 

Þátttaka í Evrópumótum til þessa:

- Meistaradeild: 2023, 2011.

- Evrópudeild: 2023, 2020, 2019, 2016, 2013, 2010.

- Sambandsdeild: 2023, 2022, 2021.

Liðin sem Blikar hafa mætt í Evrópuleikjum:

2023 - KAA Gent, Zorya Luhansk, Maccabi Tel Aviv, FC Struga - Zrinjski Mostar, FC Copenhagen, Shamrock Rovers, Buducnost Podgorica, Tre Penne.

2022 - Istanbul Basaksehir, Buducnost Podgorica, UE Santa Coloma.

2021 - Aberdeen, Austria Wien, Racing Union.

2020 - Rosenborg.

2019 - Vaduz.

2016 - Jelgava.

2013 - Aktobe, Sturm Graz, FC Santa Coloma.

2011 - Rosenborg.

2010 - Motherwell.

Samtals 42 leikir í 17 löndum - 17 sigrar - 5 jafntefli - 20 töp.

Flestir leikir í Evrópukeppnum:

2023: Í gangiRiðlakeppni Sambandsdeildar UEFA. Sambandsdeild UEFA: Umspil. FC Struga. Evrópudeild UEFA. Undankeppni: 3 umf. Zrinjski Mostar. Meistaradeild UEFA. Undankeppni: 2.umf. F.C.Copenhagen. 1.umf. Shamrock Rovers. Forkeppni: undanúrslit - Tre Penne og úrslit - Buducnost Podgorica.

2022: Sambandsdeild UEFA. Undankeppni: 3.umf. Istanbul Basaksehir - 2.umf. Buducnost Podgorica - 1.umf. UE Santa Coloma.

2021: Sambandsdeild UEFA. Undankeppni: 3.umf. Aberdeen FC - 2.umf. Austria Wien - 1.umf. Racing Uion.

2013: Evrópudeild UEFA. Undankeppni: 3.umf. FC Aktobe - 2.umf. Sturm Graz - 1.umf. FC Santa Coloma.

Um andstæðinginn

image

Zorya Luhansk rekur sögu sína aftur til ársins 1908, en félagið í núverandi mynd var stofnað árið 1964 með sameiningu liða og varð snemma áberandi í gömlu Sovétríkjunum sem lið í fremstu röð. Zorya þýðir „sólarupprás“ á úkraínsku. Árið 1972 varð Zorya Luhansk fyrsta liðið til að sigra í efstu deild í gömlu Sovétríkjunum sem ekki var frá Rússlandi – og var það ekki lítið afrek. Liðið tók þátt í Evrópukeppninni árið eftir, fyrst úkraínskra liða.

Zorya Luhansk kemur frá borginni Luhansk í Úkraínu – en innrás Rússa í Úkraínu í febrúar 2022 hefur haft mikil áhrif á liðið eins og geta má nærri. Borgin Luhansk (400.000 íbúar) er í héraðinu Donbas í austurhluta Úkraínu – sem er einmitt sá hluti landsins/hérað sem rússnenski herinn ræður nú að stórum hluta. Þess má geta að frægasti sonur borgarinnar er án efa stangarstökkvarinn Sergey Bubka sem bætti heimsmetið í greininni ósjaldan. Það eru fylkin Donetsk og Luhansk sem mynda Donbas héraðið og í samnefndum höfuðborgum þeirra eru liðin Shakhtar Donetsk og Zorya Luhansk sem leika í úkraínsku deildinni. Þau leika ekki á sínum heimavöllum vegna ástandsins í landinu og Zorya leikur til dæmis í Lublin í Póllandi sína heimaleiki í Sambandsdeildinni. Í fyrstu umferð Sambandsdeildarinnar gerði liðið jafntefli í Lublin við AA Gent frá Belgíu 1:1 sama dag og Breiðablik lék gegn Maccabi Tel Aviv í Ísrael.

Við hrun Sovétríkjanna árið 1991 tók Zorya sæti í úkraínsku deildinni þar sem liðið hefur leikið síðan. Gengi liðsins var framan af ekki neitt sérstakt en síðan árið 2014 hefur liðið ávallt verið í toppbaráttunni og þar af leiðandi þátttakandi í Evrópukeppnum, lengst af í Evrópudeildinni. 

Árangur Zorya í Evrópumótum UEFA

Alls hefur liðið leikið 50 leiki í Evrópukeppnum og mótherjar liðsins hafa verið margir í sterkari kantinum. Má þar nefna Manchester United, Feyenoord, Athletic Bilbao og fleiri. Árið 2021 komst liðið í riðlakeppni Sambandsdeildarinnar þar sem mótherjarnir voru meðal annars AS Roma. Í ár tapaði liðið einvígi við Slavia Prag um sæti í Evrópudeildinni og lenti í sama riðli og Breiðablik. 

Breiðablikshópurinn

image

Breiðablikshópurinn fagnar sæti sínu í riðlakeppni Sambandsdeildar Evrópu 2023/24

Breytingar á þjálfarteymi í október 2023

Stjórn Knattspyrnudeildar Breiðabliks tilkynnti eftir síðasta leik Bestu deildar karla 2023 að Óskar Þorvaldsson hefði látið af störfum sem þjálfari liðsins og Halldór Árnason verið ráðinn í hans stað. Óskar Hrafn Þorvaldsson var aðalþjálfari liðsins fram yfir lokaleik Bestu deildarinnar 2023. Halldór Árnason var aðstoðarþjálfari liðsins, en tók við sem aðalþjálfri af Óskari. Eyjólfur Héðinsson var afreksþjálfari og þátttakandi í þjálfarateymi meistaraflokks þar sem hann hélt utan um aðlögun yngri leikmanna inn í meistaraflokks- hópinn. Eyjólfur var svo ráðinn aðstoðarþjálfari liðsins

Valdimar Valdimarsson er markmannsþjálfari liðsins. Aron Már Björnsson er styrktarþjálfari liðsins. Í sjúkraþjálfarateyminu eru þær Særún Jónsdóttir og Ásdís Guðmundsdóttir frá Sjúkraþjálfuninni Sporthúsinu. Marinó Önundarson og Alex Tristan Gunnþórsson eru liðsstjórar.

Dagskrá

Sjötti og síðasti leikur okkar manna í riðlakeppni Sambandsdeildar Evrópu 2023/24 er gegn úkraínska liðinu Zorya Luhansk. Vegna stríðsástands í heimalandinu spilar Zorya liðið heimaleiki á Arena Lublin vellinum í Póllandi. Flautað verður til leiks kl.20:00. Leikurinn verður sýndur á Vodafone Sport rás Stöðvar 2. Útsending hefst kl.19:50! 

Stuðningsmenn Blika hér heima halda í hefðir og ætla hittast í stúkunni á Kópavogsvelli til að fylgjast með leiknum.

Dómarar eru tékkneskir. Aðaldómari er Tomas Klima. Aðstoðardómarar eru: Jan Paták og Petr Caletka. Fjórði dómari er Jan Všetečka. VAR herbergið er mannað þeim Ondřej Berka og Miroslav Zelinka

Bein textalýsing UEFA hér

Áfram Blikar! Alltaf - alls staðar!

PÓÁ

image

image

Grafík: Halldór Halldórsson

Til baka