BLIKAR.IS STUÐNINGSMANNAVEFUR

Sambandsdeild UEFA 2021/2022: Aberdeen FC - Breiðablik

10.08.2021 image

Evrópuævintýriið heldur áfram.á fimmtudaginn. Þá mætum við  Abredeen FC í þriðju umferð undankeppni Sambandsdeildar UEFA 2021/2022 á þeirra fræga heimavelli, Pittodrie Stadium, í Aberdeen.

Leikurinn verður sýndur á Stöð 2 Sport. Útsending hefst kl.18:35. Flautað verður til leiks kl.18:45!

Þrátt fyrir svekkjandi tap fyrir þeim Skosku á Laugardalsvelli á fimmtudaginn er gaman að vera Bliki þessa dagana - góður sigur gegn Stjörnumönnum á manudaginn er ekkert að skemma stemmninguna. 

Fyrri leikurinn gegn Aberdeen var frábær skemmtun en honum lauk með óverðskulduðu eins marks tapi okkar manna og ljóst að það bíður þungur róður á fimmtudaginn. Blikar þurfa hinsvegar ekki að kvíða þeim leik. Skotarnir munu þurfa að verja þetta eina mark sem þeir hafa á okkur. Við höfum fulla trú á að strákarnir nái að pressa þá vel frá byrjun og velgja þeim hressilega undir uggum. Þá koma mörkin. Leikurinn á fimmtudaginn sýndi að við erum síst lakara lið og á löngum köflum í fyrri hálfleik lék liðið stórvel og sýndi sínar bestu hliðar.

Ekki fyrsta heimsókn Blika til Skotlands

Einnig gaman að rifja upp að fyrsti Evrópuleikur Breiðabliks í karlaboltanum var gegn Skosku liði. Leikið var gegn Motherwell FC á þeirra heimavelli Fir Park 15. júlí 2010. Nokkrir núverandi leikmanna Blikaliðsins léku þennan fyrsta Evrópuleik: Finnur Orri Margeirsson, Kristinn Steindórsson, Elfar Freyr Helgason og Andri Rafn Yeoman.

image

Stuðningsmannahópur Blika á Fir Park í Motherwell 15. júlí 2010. Blikaliðið hefur ekki spilað keppnisleik í Skotlandi síðan þá.

Um heimaliðið

 Aberdeen, Ísland og Sir Alex Ferguson

Einn allra sigursælasti þjálfari allra tíma er án efa Sir Alex Ferguson, sem þjálfaði lið Manchester United óslitið frá 1986 – 2013 og vann þar til ótal verðlauna sem ekki verða tíunduð hér. En Sir Alex sló fyrst í gegn sem þjálfari þegar hann tók við stjórastarfinu hjá Aberdeen liðinu árið 1978 eftir að hafa verið rekinn frá St. Mirren. Í framhjáhlaupi má geta þess að við málaferli í kjölfar brottrekstursins lét formaður St. Mirren hafa eftir sér eiðsvarinn að ,,hann (Sir Alex) væri gjörsneyddur allri getu sem framkvæmdastjóri”. Ææ.

Það fer reyndar tvennum og jafnvel þrennum sögum um ástæðu brottrekstursins. Hvað sem því líður tók Sir Alex semsagt við stjórastarfinu hjá Aberdeen í júní 1978 og það er skemmst frá því að segja að þar náði hann glæsilegum árangri með liðið á komandi árum, þó byrjunin væri reyndar örlítið brösótt. En strax á öðru tímabilinu vann félagið Skoska meistaratitilinn og rauf þar með 15 ára einokun Rangers og Celtic. Á næstu árum, eða þar til Sir Alex fór til Manchester United árið 1986, unnu þeir deildina 2svar til viðbótar, skoska bikarinn fjórum sinnum, deildabikarinn einu sinni, og að auki tvo Evróputitla, Evrópukeppni bikarhafa 1983, þar sem þeir unnu Real Madrid í framlengdum úrslitaleik og svo Ofurbikarinn (Uefa Super Cup) þar sem þeir unnu Hamburger Sportverein í 2ja leikja einvígi. Ekkert skoskt lið hefur unnið Evrópukeppni eftir þennan sigur Aberdeen.

Aberdeen, undir stjórn Sir Alex, kom 2svar til Íslands í Evrópukeppni, og í bæði skiptin var það lið Skagamanna sem var andstæðingurinn. ÍA var þá með geysisterkt lið og vann deild og bikar bæði 1983 og 1984. Aberdeen hafði betur í báðum viðureignum en Skagamenn veittu þeim verðskuldaða keppni og voru nálægt því að slá þá út 1983, þegar þeir töpuðu ósanngjarnt hér heima 1-2 og gerðu 1-1 jafntefli ytra. 

Í liði Aberdeen á þessum árum voru margir leikmenn sem síðar létu að sér kveða í öðrum löndum, má þar m.a. nefna Gordon Strachan, Jim Leighton, Alex McLeish og Eric Black, að ógleymdum James (Jim) Bett sem lék 2 leiki með Val 1978, áður en hann fór svo í atvinnumennsku til Belgíu,  og svo aftur 13 leiki með KR 1994, eftir að hann yfirgaf Aberdeen.

Nýjustu fregnir herma að til standi að reisa styttu af Sir Alex Ferguson fyrir utan Pittodrie, heimavöll Aberdeen. Það má nú eiginlega ekki minna vera, og þó fyrr hefði verið.
Þess má svo geta til gamans að Aberdeen lék fyrsta sinn í Evrópukeppni árið 1967. Andstæðingarnir voru KR og er skemmst frá því að segja að þar lutu Bjarni Fel og félagar í gras. Leikurinn ytra tapaðist 10-0 og hér heima fór 4-1 fyrir gestina. Mark KR gerði Eyleifur Hafsteinsson.

Leikir Aberdeen gegn íslenskum liðum

Evrópukeppni Bikarhafa
1967 – Aberdeen – KR 10 – 0
1967 - KR – Aberdeen 1-4
1983  - ÍA – Aberdeen 1-2
1983 – Aberdeen – ÍA 1-1

Evrópukeppni Meistaraliða
1985 – ÍA – Aberdeen 1-3
1985 – Aberdeen – ÍA 4-1

Nokkrir Íslendingar sem spilað hafa með Aberdeen: Kári Árnason, Þórarinn Brynjar Kristjánsson, Haraldur Ingólfsson og bræðurnir Calum Þór og Baldur Bett. Kári var á mála hjá félaginu 2011-2012 og svo aftur 2017-18. Hann spilaði alls 54 deildarleiki. Þórarinn lék 3 deildarleiki tímabilið 2004-05, Haraldur lék 6 leiki tímabilið 1996-97 á láni frá ÍA. Calum lék 5 eiki á árunum 2000-02 og Baldur lék 2 leiki á árunum 1998-2000. Bett-bræður hófu sína ferla hjá Aberdeen. Þá lék Gunnar Einarsson á sínum tíma fyrir unglinga- og varalið Aberdeen en spilaði ekki fyrir aðalliðið.

Fyrsti leikur Aberdeen í deildinni 2021/2022 var um þar síðustu helgi. Þá fengu þeir Dundee United í heimsókn og unnu þá 2:0 með mörkum frá Jonny Hayes á 27´og Christian Ramirez á 51'. Á sunnudaginn var léu þeir á útivelli gegn Livingston og unnu leikinn 1:2. Jack McKenzie skoraði sigurmarkið á 90+4'. Teddy Jenks skoraði fyrra markið á 47'. 

image

Um viðburðinn

Breiðablik og Aberdeen mætast í UEFA Europa Conference League fimmutdaginn 12. ágúst kl.18:45!

Leikurinn verður sýndur á Stöð 2 Sport. Útsending hefst kl.18:35. Flautað er til leiks kl.18:45. 

Dómarar eru frá Ítalíu: Marco Di Bello. Aðstoðardómarar: Ciro Carbone og Alessio Tolfo. Fjórði dómari: Giovanni Ayroldi.

Bein textalýsing UEFA 

Sport og Grill í Smáralindinni er með gott burger+drykk tilboð fyrir stuðningmenn Blikaliðsins. Mæting 17:00 leikur byrjar 18:45.

Áfram Blikar, alltaf, alls staðar!

Til baka